Persónuverndarstefna Dugurs

Síðast uppfærð í ágúst 2026 · Beta-útgáfa

Dugur er íslenskt vasapeninga- og verkefnaapp fyrir börn og foreldra. Okkur er alvara með persónuvernd, sérstaklega af því að notendurnir eru börn, og þess vegna er appið hannað þannig að það safni eins litlu og mögulegt er.

Það mikilvægasta fyrst: öll gögn barnsins, nafn, verkefni, hök, vasapeningur, sparnaður og óskalisti, eru eingöngu geymd á tækinu sem appið er notað á. Þau eru aldrei send til okkar eða nokkurs annars, og við getum ekki séð þau. Ef appinu er eytt af tækinu eyðast gögnin með því.

Ábyrgðaraðili

Helga Lóa Kristjánsdóttir, sem stendur að Dugri, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt þessari stefnu. Fyrirspurnir og beiðnir má senda á dugur@dugur.kids.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Við söfnum engum upplýsingum um börn. Nafn barnsins og allt sem það gerir í appinu er aðeins á tækinu ykkar.

Vinnsluaðilar

Við notum trausta þjónustuaðila til að reka Dugur, og þeir vinna aðeins með upplýsingar fyrir okkar hönd:

Hve lengi geymum við upplýsingar?

Netfangið þitt geymum við á meðan Dugur er í rekstri og þú vilt vera á listanum. Þú getur hvenær sem er afskráð þig með hlekk í póstunum okkar eða með því að senda okkur línu, og þá eyðum við því.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að afturkalla samþykki fyrir tölfræðisöfnun hvenær sem er. Sendu okkur línu á dugur@dugur.kids og við bregðumst við eins fljótt og við getum. Þér er líka frjálst að beina kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).

Breytingar á stefnunni

Ef vinnslan breytist, t.d. ef appið fær skýjavistun síðar, uppfærum við þessa stefnu og látum vita í tölvupósti áður en breytingin tekur gildi.

← Til baka á dugur.kids